Tottenham Hotspur íhugaði alvarlega að endurráða ástralska þjálfarann Ange Postecoglou áður en það setti sig í samband við Roberto De Zerbi samkvæmt enska blaðamanninum Alasdair Gold.
Igor Tudor var annar stjórinn sem var látinn taka poka sinn hjá Tottenham á þessu tímabili eftir að hafa unnið aðeins einn af sjö leikjum.
Tottenham skoðaði marga kosti, þar á meðal Mauricio Pochettino og Oliver Glasner.
Pochettino og Glasner komu ekki til greina í starfið á þessum tímapunkti og var því farið í það að skoða bráðabirgðakost og þar kom nafn Ange Postecoglou upp áður en De Zerbi var ráðinn.
„Þeir skoðuðu að finna einhvern til bráðabirgða. Mér var sagt að þeir íhuguðu í smástund a fá Ange Postecoglou. Þegar ég segi smástund þá meina ég nákvæmlega það. Þetta var eitthvað sem þeir pældu í en hefði það verið hægt? Ef ég horfi til baka á það sem ég sagði áður um þetta er að ef þú ert stofnun sem varst nýlega að borga einhverjum svakalegan pening til a rifta samningi þá ertu ekki beint að hugsa um það að fá þann aðila strax inn, gefa þeim annað starf og meiri pening,“ sagði Gold.
Postecoglou var látinn fara frá Tottenham á síðasta ári, nokkrum dögum eftir að hafa unnið Evrópudeildina með liðinu. Hann tók við Nottingham Forest um haustið en var rekinn eftir aðeins 39 daga í starfi.


