Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
   fös 03. apríl 2026 17:11
Snæbjört Pálsdóttir
Tap í uppbótartíma en Konni er stoltur
Konráð Freyr Sigurðsson þjálfari Tindastóls
Konráð Freyr Sigurðsson þjálfari Tindastóls
Mynd: Sigurður Ingi Pálsson

Tindastóll laut í lægra haldi fyrir Njarðvík 0-1 á Sauðárkróksvelli í dag, eftir að hafa fengið á sig mark í uppbótartíma, og eru því fallnir úr bikar þetta árið. 

„Svekkjandi tap en bara hvernig seinni hálfleikur þróaðist, við sátum alveg ægilega langt niðri og þeir voru í sókn. Nikola gerði svakalega vel í markinu og vörnin var nú að halda en svo var bara eitt fast leikatriði og þá sprakk þetta aðeins. Það er svona gífurlega svekkjandi að fá þetta úr föstu leikatriði en ógeðslega stoltur af strákunum og þetta var svakalega skemmtilegur leikur." Sagði Konni, Konráð Freyr Sigurðsson þjálfari Tindastóls eftir leikinn. 


Lestu um leikinn: Tindastóll 0 -  1 Njarðvík

„Við lögðum svona aðeins fyrir leikinn að taka orkustigið upp á eitthvað annað level og við náðum því í fyrri hálfleik. Náðum svona aðeins að komast inn í þá en þeir eru bara með ótrúlega gott lið og það er bara staðan. Að horfa á síðustu leiki hjá þeim og upplifa að spila við þá núna, þeir eru bara með svaka sterkt lið."

„Þetta er bara svona ævintýri, ævintýri að taka einn leik við sterkari andstæðinga og við lið sem eru í deildum fyrir ofan okkur. Þetta er svona ævintýri fyrir strákana sem eru að spila, ævintýri fyrir mig og ævintýri fyrir klúbbinn að fá svona gott lið á leikinn, það skemmir ekki fyrir."

„Við erum að fara lagfæra varðandi til dæmis sóknaráherslur og svoleiðis. Það eru leikmenn að koma inn, við munum bæta við okkur en þetta verður bara skemmtilegt framhald."

Horfðu á viðtalið í spilaranum hér að ofan


Slapp
banner
banner