Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 11:49
Brynjar Ingi Erluson
Arteta stjóri mánaðarins
Mikel Arteta
Mikel Arteta
Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er stjóri mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni, en þetta er í fyrsta sinn á þessu tímabili sem hann vinnur þessi verðlaun.

Arteta er að færast nær fyrsta Englandsmeistaratitli sínum sem stjóri Arsenal.

Liðið er með níu stiga forystu á Manchester City, sem á að vísu leik til góða.

Lærisveinar Arteta unnu alla þrjá leiki sína í mars og hefur Arteta verið valinn stjóri mánaðarins. Það kemur kannski helst á óvart að þetta sé í fyrsta sinn sem hann hlýtur þessi verðlaun á tímabilinu miðað við árangur Arsenal-liðsins.

Það óvæntasta í þessu er kannski það að enginn stjóri hefur unnið verðlaunin oftar en einu sinni á leiktíðinni.

Þá er þetta í níunda sinn sem Arteta er valinn stjóri mánaðarins síðan hann tók við Arsenal fyrir sex og hálfu ári síðan.


Slapp
banner