Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Hefi örugglega verið vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
banner
   fös 03. apríl 2026 19:15
Kári Snorrason
Bestur í Mjólkurbikarnum - „Klúbbur sem á ekkert að vera í þessari deild“
Fullhlaðinn Arian.
Fullhlaðinn Arian.
Mynd: Kári Snorrason
Var áður hjá Ými.
Var áður hjá Ými.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Arian Ari Morina var valinn besti leikmaður Mjólkurbikarsins fyrir frammistöðu sína í með Álftanes í 2. umferð keppninnar.

Álftanes, sem leikur í 4. deild, vann óvæntan stórsigur gegn 2. deildarliði Kára, lokatölur 5-1. Arian fór þar á kostum og skoraði hann tvö mörk ásamt því að leggja eitt upp til viðbótar.

Arian mætti í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag, þar sem hann tók á móti verðlaunum frá Mjólkursamsölunni ásamt því að ræða við Fótbolta.net.

„Þetta var flottur leikur. Káramenn voru erfiðir en við mættum til leiks og unnum þá.

Við erum með alvöru þjálfara og erum alvöru klúbbur. Þetta er félag sem á ekkert að vera í fjórðu deild, það er mikill metnaður hjá okkur.“


Með sigrinum gegn Kára tryggði Álftanes sér áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins þar sem liðið mætir Gróttu á Vivaldivellinum á mánudag.


Slapp
banner
banner