Roy Hodgson byrjaði stjóratíðina sína hjá Bristol City með 2-1 sigri á Charlton í ensku Championship deildinni í gærdag.
Hinn 78 ára Hodgson sneri úr starfslokum til að stýra liðinu síðustu sjö leiki tímabilsins. Hann þekkir vel til hjá Bristol City en hann stýrði liðinu síðast árið 1982, fyrir 44 árum síðan.
Hinn 78 ára Hodgson sneri úr starfslokum til að stýra liðinu síðustu sjö leiki tímabilsins. Hann þekkir vel til hjá Bristol City en hann stýrði liðinu síðast árið 1982, fyrir 44 árum síðan.
Sigur gærdagsins var sá fyrsti í sjö leikjum. Scott Twine kom liðinu yfir snemma leiks en Lyndon Dykes jafnaði fyrir Charlton. Sænski varnarmaðurinn Noah Eile skoraði síðan sigurmarkið snemma í síðari hálfleik.
Sigurinn lyftir Bristol City upp í 13. sæti en Charlton er í 18. sæti deildarinnar.


