Enzo Fernandez er ekki eini Chelsea-maðurinn sem var að blaðra í fjölmiðlum í landsleikjaglugganum en Liam Rosenior, stjóri félagsins, segist einnig vera vonsvikinn með ummæli spænska landsliðsmannsins Marc Cucurella.
Rosenior staðfesti á fréttamannafundi í dag að Enzo væri kominn í tveggja leikja agabann fyrir að daðra opinberlega við Real Madrid í viðtali við LuzuTV.
Nokkrum dögum áður hafði Cucurella sagt í viðtali við Athletic að honum hafi fundist skrítið að reka Enzo Maresca á miðju tímabili og að stórt tap Chelsea gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni hafi verið niðurlægjandi fyrir félagið.
Einnig talaði hann um að snúa aftur til Spánar á einhverjum tímapunkti og það yrði erfitt fyrir hann að hafna Barcelona.
Cucurella fær ekki agabann eins og Enzo, en Rosenior segist engu að síður mjög vonsvikinn með ummælin sem hann lét falla.
„Þetta er aðskilið mál. Marc er klár í slaginn og mun vera með á morgun. Allir þekkja karakter hans. Marc er ástríðufullir og vill gera vel. Þetta var langt viðtal þar sem hann ræddi opinskátt um það sem hann er að hugsa. Þegar ég hitti hann í gær þá minnti ég á að hann getur verið hreinskilinn við mig. Það tekur tíma að byggja þessi sambönd.
„Hann er algerlega skuldbundinn félaginu og vill vera hér. Hann hefur verið mjög skýr með það og hefur þar að auki mikla trú á því sem við erum að gera.“
„Ég átti frábært samtal með Marc í gær þar sem við eyddum hálftíma í að ræða hlutina. Ég hef verið hér í tæpa þrjá mánuði og hef notið þess, líka á erfiðu augnablikunum.“
„Ég hef sagt leikmönnum frá fyrsta degi að ef þeir eru ósáttir með hvernig við gerum hlutina þá geta þeir talað við mig eða þá sem stýra fótboltamálum félagsins.“
„Það sem ég er mest vonsvikinn með viðtalið við Marc er hvert það fór. Hann hefði átt að ræða tilfinningar sínar við okkur fyrst. Ég vil að leikmennirnir viti að þeir geta talað opinskátt og hreinskilið til að gagnast félaginu. Við vitum að við þurfum að bæta okkur sem knattspyrnufélag.“
„Við vitum hvað við ætlum að gera í sumar til þess að ná þessum markmiðum,“ sagði Rosenior.
30.03.2026 20:30
„Yrði erfitt að hafna Barcelona"
Einnig kom hann inn á stemninguna í klefanum en hann segir ekkert ósætti vera milli leikmanna.
„Það eru ákveðin samtöl sem þurfa að haldast innan veggja klefans. Það er hins vegar ekkert ósætti í klefanum. Það er ekki þannig að ákveðin hópur leikmanna sé ekki að ræða við annan hóp leikmanna. Við erum saman í þessu.
„Öll félög fara í gegnum erfiða kafla. Síðustu tíu dagar hafa verið mjög erfiðir en núna er tíminn til þess að þjappa saman hópinn og leggja okkur alla fram,“ sagði stjórinn í lokin.




