Lengjudeildarlið Njarðvíkur er komið áfram í 16-liða úrslit eftir dramatískan 1-0 sigur á Tindastól á Sauðárkróksvelli í dag. Sigurmarkið gerði Símon Logi Thasaphong í uppbótartíma síðari hálfleiks.
Fyrirfram var búist við nokkuð þægilegum sigri Njarðvíkur enda með töluvert sterkari hóp og að mæta liði sem er tveimur deildum neðar en það varð alls ekki raunin.
Njarðvík var vissulega mun meira með boltann í fyrri hálfleiknum en skapaði sér fá færi. Tindastóll beitti öguðum varnarleik og reyndi að nýta skyndisóknir og föst leikatriði.
Staðan í hálfleik var markalaus og hafði Nikola Stoisavljevic, markvörður Tindastóls, ekki mikið að gera, en það varð breyting á því í síðari hálfleiknum.
Hann átti margar góðar vörslur. Hann tók tvöfalda vörslu á 55. mínútu og síðan varði hann skalla frá Braga Karli Bjarkasyni tíu mínútum síðar.
Aron Einarsson var næstur að ógna með skoti af hægri kantinum sem small í þverslánni og nokkrum mínútum síðar átti Valdimar Jóhannsson hörkuskot úr aukaspyrnum sem stefndi í samskeytin en aftur kom Nikolaj til bjargar.
Allt stefndi í framlengingu. Stólarnir voru svolítið að treysta á það, en þeir gleymdu sér í augnablik og tókst NJarðvíkingum að skora snemma í uppbótartímanum. Markið gerði Símon Logi með þrumuskoti.
Þolinmæðisvinna hjá Njarðvíkingum en ótrúlega svekkjandi fyrir Tindastól sem hafði gert allt rétt í 90 mínútur, en leikur er víst 90 mínútur plús uppbót og gátu gestirnir andað léttar.




