Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 03. apríl 2026 16:21
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Velsku liðin komu til baka - Tekst Leicester að bjarga sér?
Patson Daka skoraði bæði mörk Leicester í jafntefli
Patson Daka skoraði bæði mörk Leicester í jafntefli
Mynd: EPA
Wrexham kom til baka og náði í stig
Wrexham kom til baka og náði í stig
Mynd: EPA
Alls voru fimm jafntefli í 40. umferð ensku B-deildarinnar í dag þar sem Hollywood-lið Wrexham tókst að bjarga stigi eftir að hafa lent tveimur mörkum undir gegn WBA.

Oxford og Hull City gerðu 1-1 jafntefli. Bæði mörk leiksins komu á fyrsta stundarfjórðungnum.

Pelle Mattsson, leikmaður Norwich, skoraði bæði mörkin í 1-1 jafntefli gegn Portsmouth. Hann kom sínum mönnum yfir á 26. mínútu og varð síðan fyrir því óláni að setja boltann í eigið net þegar sex mínútur voru til leiksloka.

Patson Daka bjargaði stigi fyrir Leicester í 2-2 jafntefli gegn Preston North End. Leicester fékk sex refsistig fyrir brot á rekstarreglum deildarinnar. Leicester í fallsæti, einu stigi frá öruggu sæti.

WBA fór illa að ráði sínu í 2-2 jafntefli gegn Wrexham. WBA komst í tveggja marka forystu en Wrexham kom til baka í síðari hálfleik með mörkum frá Josh Windass og George Dobson. Wrexham er í 6. sæti sem gefur þátttöku í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildina.

Andri Lucas Guðjohnsen var ekki með Blackburn Rovers í 1-0 sigri liðsins á Birmingham. Andri Lucas er meiddur og mun ekki spila meira á þessu tímabili.

Sheffield United og Swansea gerðu 3-3 jafntefli í Sheffield. Þar köstuðu heimamenn frá sér 3-1 forystu. Adam Idah og Ji-Sung Eom skoruðu tvö mörk á sjö mínútum fyrir Swansea og náðu að landa stigi fyrir velska liðið.

Úrslit og markaskorarar:

Oxford United 1 - 1 Hull City
0-1 Mohamed Belloumi ('4 )
1-1 Cameron Brannagan ('13 , víti)

Norwich 1 - 1 Portsmouth
1-0 Pelle Mattsson ('26 )
1-1 Pelle Mattsson ('84 , sjálfsmark)

Leicester City 2 - 2 Preston NE
1-0 Patson Daka ('4 )
1-1 Andrew Moran ('38 )
1-2 Ben Whiteman ('45 )
2-2 Patson Daka ('81 )

QPR 2 - 1 Watford
1-0 Rayan Kolli ('26 )
2-0 Paul Smyth ('63 )
2-1 Imran Louza ('85 )

West Brom 2 - 2 Wrexham
1-0 George Dobson ('26 , sjálfsmark)
2-0 Josh Maja ('38 , víti)
2-1 Josh Windass ('47 )
2-2 George Dobson ('62 )

Charlton Athletic 1 - 2 Bristol City
0-1 Scott Twine ('11 )
1-1 Lyndon Dykes ('30 )
1-2 Noah Eile ('55 )

Birmingham 0 - 1 Blackburn
0-1 Todd Cantwell ('69 )

Stoke City 2 - 0 Sheffield Wed
1-0 Jesurun Rak-Sakyi ('32 )
2-0 Lamine Cisse ('57 )

Sheffield Utd 3 - 3 Swansea
1-0 Gustavo Hamer ('16 )
1-1 Zan Vipotnik ('24 , víti)
2-1 Harrison Burrows ('53 )
3-1 Thomas Cannon ('64 )
3-2 Adam Idah ('75 )
3-3 Ji-sung Eom ('82 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 44 26 11 7 90 44 +46 89
2 Millwall 45 23 11 11 62 49 +13 80
3 Ipswich Town 43 22 13 8 75 45 +30 79
4 Southampton 44 21 13 10 77 53 +24 76
5 Middlesbrough 44 21 13 10 65 44 +21 76
6 Wrexham 44 19 13 12 66 60 +6 70
7 Hull City 44 20 10 14 67 63 +4 70
8 Derby County 44 19 9 16 63 55 +8 66
9 Norwich 44 19 7 18 61 53 +8 64
10 Birmingham 44 16 12 16 54 54 0 60
11 Swansea 44 17 9 18 53 57 -4 60
12 Bristol City 44 16 11 17 56 57 -1 59
13 QPR 44 16 10 18 59 67 -8 58
14 Sheffield Utd 44 17 6 21 62 62 0 57
15 Watford 44 14 15 15 52 56 -4 57
16 Preston NE 44 14 15 15 51 57 -6 57
17 Stoke City 44 15 10 19 50 51 -1 55
18 West Brom 44 13 13 18 47 56 -9 52
19 Blackburn 45 13 13 19 42 55 -13 52
20 Portsmouth 44 13 12 19 45 62 -17 51
21 Charlton Athletic 44 12 14 18 41 54 -13 50
22 Oxford United 44 10 14 20 41 56 -15 44
23 Leicester 45 11 16 18 57 68 -11 43
24 Sheff Wed 44 1 12 31 26 84 -58 -3
Slapp
banner
banner
banner