Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fös 03. apríl 2026 21:40
Kári Snorrason
Championship: Lærisveinar Lampard með annan fótinn í úrvalsdeildinni
Mynd: EPA
Frank Lampard og lærisveinar hans í Coventry eru komnir í ansi góða stöðu í Championship-deildinni eftir að hafa lagt Derby að velli fyrr í kvöld.

Liðið er nú með 83 stig á toppi deildarinnar, ellefu stigum á undan Millwall og tólf stigum á undan Middlesborough sem er í þriðja sæti.

Coventry komst yfir snemma leiks þegar Frank Onyeka skoraði eftir laglega sókn. Derby jafnaði hins vegar skömmu fyrir hálfleik þegar Sílemaðurinn Ben Brereton Diaz skoraði með skalla.

Varamaðurinn Jack Rudoni kom heldur betur inn með krafti og kom hann Coventry yfir eftir að hafa verið inn á í sex mínútur.

Ben Brereton Diaz jafnaði þó metin á nýjan leik fyrir Derby úr vítaspyrnu á 77. mínútu, en Rudoni átti lokaorðið þegar hann skoraði sigurmarkið þremur mínútum síðar.

Coventry er nú tólf stigum frá þriðja sætinu þegar sex leikir eru eftir en efstu tvö sætin tryggja liðum beint upp í ensku úrvalsdeildina.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 44 26 11 7 90 44 +46 89
2 Ipswich Town 43 22 13 8 75 45 +30 79
3 Millwall 44 23 10 11 61 48 +13 79
4 Southampton 44 21 13 10 77 53 +24 76
5 Middlesbrough 44 21 13 10 65 44 +21 76
6 Wrexham 44 19 13 12 66 60 +6 70
7 Hull City 44 20 10 14 67 63 +4 70
8 Derby County 44 19 9 16 63 55 +8 66
9 Norwich 44 19 7 18 61 53 +8 64
10 Birmingham 44 16 12 16 54 54 0 60
11 Swansea 44 17 9 18 53 57 -4 60
12 Bristol City 44 16 11 17 56 57 -1 59
13 QPR 44 16 10 18 59 67 -8 58
14 Sheffield Utd 44 17 6 21 62 62 0 57
15 Watford 44 14 15 15 52 56 -4 57
16 Preston NE 44 14 15 15 51 57 -6 57
17 Stoke City 44 15 10 19 50 51 -1 55
18 West Brom 44 13 13 18 47 56 -9 52
19 Blackburn 45 13 13 19 42 55 -13 52
20 Portsmouth 44 13 12 19 45 62 -17 51
21 Charlton Athletic 44 12 14 18 41 54 -13 50
22 Oxford United 44 10 14 20 41 56 -15 44
23 Leicester 44 11 15 18 56 67 -11 42
24 Sheff Wed 44 1 12 31 26 84 -58 -3
Slapp
banner
banner