Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 21:15
Kári Snorrason
Frakkland: Dembele með tvö í sigri PSG
Mynd: EPA
Paris Saint Germain 3 - 1 Toulouse
1-0 Ousmane Dembele ('23 )
1-1 Rasmus Nicolaisen ('27 )
2-1 Ousmane Dembele ('33 )
3-1 Goncalo Ramos ('90 )

Paris Saint-Germain styrkti stöðu sína á toppi frönsku deildarinnar með 3-1 sigri á Toulouse á Prinsavöllum fyrr í kvöld. Liðið er nú með fjögurra stiga forskot á Lens.

Gullboltahafinn Ousmane Dembele var í aðalhlutverki hjá Parísarmönnum og skoraði tvö mörk, Goncalo Ramos innsiglaði sigurinn undir lokin.

PSG byrjaði betur og fékk liðið nokkur góð færi áður en Dembele braut loks ísinn á 23. mínútu með huggulegu skoti utan teigs. Forskotið entist þó aðeins í fjórar mínútur en Rasmus Nicolaisen jafnaði metin með skalla eftir mistök Matvey Safonov, markvarðar PSG.

Parísarmenn svöruðu um hæl og komust aftur yfir eftir rúman hálftíma leik með marki Dembele eftir hornspyrnu. Hann skoraði síðan þriðja mark sitt en markið var réttilega dæmt af vegna rangstöðu.

Goncalo Ramos gulltryggði síðan sigurinn á 91. mínútu með föstu skoti utan teigs sem fór í stöngina og inn.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner