Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 03. apríl 2026 13:46
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Skoraði tvö í endurkomusigri á gömlu félögunum
Josh Coburn minnti Middlesbrough á það að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur
Josh Coburn minnti Middlesbrough á það að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur
Mynd: Millwall FC
Middlesbrough 1 - 2 Millwall
1-0 Dael Fry ('26 )
1-1 Josh Coburn ('58 )
1-2 Josh Coburn ('86 )

Sóknarmaðurinn Josh Coburn gerði sínum gömlu liðsfélögum í Middlesbrough grikk með því að gera bæði mörk Millwall í 2-1 sigri í toppbaráttuslag á Riverside-leikvanginum í Middlesbrough í dag.

Coburn er á öðru tímabili sínu með MIllwall en hann kom fyrst á láni frá Boro sumarið 2024 og var síðan keyptur á síðasta ári fyrir fimm milljónir punda.

Boro-menn sátu í öðru sæti deildarinnar fyrir leikinn á meðan Millwall var í 4. sæti.

Dael Fry skoraði fyrir Boro á 26. mínútu leiksins en í þeim síðari skoraði Coburn tvö mörk á tæpum þrjátíu mínútum. Hann jafnaði metin á 58. mínútu með hörkuskoti er boltinn datt fyrir hann eftir hornspyrnu og sigurmarkið gerði hann nokkrum mínútum fyrir leikslok eftir að hafa leikið á Luke Ayling á vinstri vængnum áður en hann setti boltann í netið.

Sigurinn kemur Millwall upp í 2. sæti deildarinnar með 72 stig, stigi meira en Boro sem er í 3. sæti. Sterkur sigur hjá Millwall þegar aðeins sex umferðir eru eftir. Þetta eru þá góð úrslit fyrir Coventry sem getur farið langleiðina með að tryggja úrvalsdeildarsætið er það tekur á móti Derby County á eftir.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 44 26 11 7 90 44 +46 89
2 Millwall 45 23 11 11 62 49 +13 80
3 Ipswich Town 43 22 13 8 75 45 +30 79
4 Southampton 44 21 13 10 77 53 +24 76
5 Middlesbrough 44 21 13 10 65 44 +21 76
6 Wrexham 44 19 13 12 66 60 +6 70
7 Hull City 44 20 10 14 67 63 +4 70
8 Derby County 44 19 9 16 63 55 +8 66
9 Norwich 44 19 7 18 61 53 +8 64
10 Birmingham 44 16 12 16 54 54 0 60
11 Swansea 44 17 9 18 53 57 -4 60
12 Bristol City 44 16 11 17 56 57 -1 59
13 QPR 44 16 10 18 59 67 -8 58
14 Sheffield Utd 44 17 6 21 62 62 0 57
15 Watford 44 14 15 15 52 56 -4 57
16 Preston NE 44 14 15 15 51 57 -6 57
17 Stoke City 44 15 10 19 50 51 -1 55
18 West Brom 44 13 13 18 47 56 -9 52
19 Blackburn 45 13 13 19 42 55 -13 52
20 Portsmouth 44 13 12 19 45 62 -17 51
21 Charlton Athletic 44 12 14 18 41 54 -13 50
22 Oxford United 44 10 14 20 41 56 -15 44
23 Leicester 45 11 16 18 57 68 -11 43
24 Sheff Wed 44 1 12 31 26 84 -58 -3
Slapp
banner
banner
banner