Mikel Arteta, stjóri Arsenal, sat fyrir svörum fréttamanna í dag, en hann ræddi þar sérstakt atvik sem kom upp í landsleikjaglugganum þar sem ellefu leikmenn liðsins drógu sig úr landsliðinu.
Það vakti mikla athygli að hver Arsenal-maðurinn á fætur öðrum dró sig úr landsliðinu í glugganum.
Alls drógu 23 leikmenn úr úrvalsdeildinni sig úr landsliðsverkefninu, þar af ellefu frá Arsenal, en það voru þeir Declan Rice, Bukayo Saka, Noni Madueke, Jurrien Timber, Piero Hincapie, Martin Zubimendi, Gabriel, William Saliba og Leandro Trossard ásamt Martin Ödegaard og Eberechi Eze.
Eze meiddist og verður frá næsta mánuðinn og þá varð Madueke einnig fyrir meiðslum.
Arteta kom með loðin svör er hann var spurður hvort leikmennirnir væru klárir í leikinn um helgina.
„Það mun bara koma í ljós. Þið getið velt þessu fyrir ykkur og svo dæmt það eftirá,“ sagði Arteta þegar hann var spurður út í þennan sérstaka landsleikjaglugga.
„Við erum í stöðu þar sem við þurfum okkar sterkasta byrjunarlið til að geta mögulega unnið allar keppnir. Við erum tveimur eða þremur leikjum frá enska bikarnum og vitum hversu mikilvæg sú keppni er fyrir okkur.“
„Þegar þú ert í formi og klár í að spila fyrir landsliðið þá verður þú að spila. Við erum svo stoltir að við eigum marga leikmenn sem eru í landsliðinu.“
„Leikmennirnir vilja ólmir spila fyrir land og þjóð. Ég veit hversu mikilvægt þetta er fyrir þá og við sýnum því mikinn skilning, en þegar það er tækifæri til að gera þetta þá auðvitað gerum við það.“
„Við eigum í mjög góðu sambandi við flest landsliðin, þar á meðal Thomas Tuchel (þjálfara enska landsliðsins). Við höfum alltaf sýnt mikinn stuðning og erum alltaf heiðarlegir þegar við höfum þurft að greina frá standi leikmanna. Í kjölfarið þarf að taka læknisfræðilega ákvörðun og niðurstaðan var fremur skýr,“ sagði Arteta.



