Ganverjar eru nálægt því að ráða Joachim Löw sem nýjan landsliðsþjálfara.
Otto Addo var rekinn sem landsliðsþjálfari Gana fyrr í vikunni aðeins 72 dögum fyrir fyrsta leik þjóðarinnar á komandi heimsmeistaramóti.
Otto Addo var rekinn sem landsliðsþjálfari Gana fyrr í vikunni aðeins 72 dögum fyrir fyrsta leik þjóðarinnar á komandi heimsmeistaramóti.
Löw stýrði Þýskalandi til sigurs á HM í Brasilíu árið 2014. Hann hefur ekki þjálfað síðan hann lét af störfum sem landsliðsþjálfari Þýskalands árið 2021 eftir 15 ár í starfi.
Hann er sagður ætla að skrifa undir stuttann samning við Gana sem gildir út heimsmeistaramótið.
Á síðasta ári lýsti Löw yfir miklum áhuga á að taka við landsliði fyrir HM í ár en sagðist þá ekki hafa fengið nein tilboð. Nú virðist hins vegar stefna í að sú ósk hans rætist.


