Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   lau 04. apríl 2026 06:30
Kári Snorrason
Aberdeen í hættu á að falla í fyrsta sinn
Aberdeen mætti Breiðabliki í forkeppni Evrópudeildarinnar fyrir fimm árum.
Aberdeen mætti Breiðabliki í forkeppni Evrópudeildarinnar fyrir fimm árum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aberdeen er í mikilli fallbaráttu í skosku úrvalsdeildinni. Félagið hefur aldrei fallið úr efstu deild en slök úrslit að undanförnu hafa sett það met í hættu.

„Við erum í fallbaráttu. Ef það var ekki ljóst áður þá er það klárt núna,“ sagði Stephen Robinson, nýráðinn þjálfari liðsins, eftir 4-1 tap gegn Rangers á dögunum.

Aberdeen er í 9. sæti með 30 stig, aðeins þremur stigum frá fallsæti nú þegar sjö umferðir eru eftir. Tvö lið eru fyrir neðan Aberdeen og mæta þeir öðru þeirra þegar þeir heimsækja St Mirren á morgun í sex stiga leik.

Liðið sem endar í 11. sæti í skosku úrvalsdeildinni mætir sigurvegara úr umspili liða í sæti 2 til 4 í næst efstu deild. Sigurliðið þar tryggir sér sæti í úrvalsdeildinni.
Slapp
banner