Alisson, markvörður Liverpool á Englandi, mun ekki spila næstu leiki með Liverpool og er ekki búist við að hann verði klár fyrr en undir lok tímabilsins. Þetta sagði Arne Slot, stjóri félagsins, á blaðamannafundi í dag.
Alisson meiddist stuttu fyrir landsleikjagluggann og var því ekki með brasilíska landsliðinu í leikjunum gegn Frakklandi og Króatíu.
Slot hefur staðfest að Alisson verði ekki með gegn Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og ekki snúa aftur fyrr en í lok tímabils.
„Hann verður ekki með í leikjunum gegn PSG, þannig hann verður frá í einhvern tíma og við erum ekki að búast við honum aftur fyrr en undir lok tímabilsins,“ sagði Slot.
Georgíumaðurinn Giorgi Mamardashvili fær tækifæri til að láta ljós sitt skína í næstu leikjum.
Alisson hefur misst af ellefu leikjum með Liverpool á þessu tímabili vegna meiðsla. Hann hefur verið gjarn á að meiðast og misst af meira en 70 leikjum síðan hann samdi við Liverpool árið 2018.



