Rogers opinn fyrir því að fara frá Villa - Leipzig setur verðmiða á Diomande - Grealish áfram hjá Everton?
   fös 03. apríl 2026 14:16
Brynjar Ingi Erluson
Á erfitt með að skilja tilgang landsleikjagluggans - „Glórulaust“
Pep Guardiola
Pep Guardiola
Mynd: EPA
Spænski stjórinn Pep Guardiola segist ekki enn skilja tilgang landsleikjagluggans í mars og segir algerlega óþarfi að kalla menn í landsliðið til að spila vináttulandsleiki á þessum tímapunkti tímabilsins.

Guardiola mætti á fréttamannafund fyrir leikinn gegn Liverpool í 8-liða úrslitum enska bikarsins í dag og ræddi þar ýmsa hluti.

Hann segir Man City enn eiga möguleika á að vinna titilinn og að nú fari öll einbeiting í að ná Arsenal sem er með níu stiga forystu.

„Ég myndi elska það að vera spila í Meistaradeildinni í næstu viku og eiga erilsama dagskrá framundan, en því miður erum við úr leik.“

„Við einbeitum okkur núna að leiknum gegn Liverpool og síðan fyrir deildarleikinn í næstu viku. Þetta eru síðustu tækifærin því eigum enn örlítinn möguleika á að vinna ensku úrvalsdeildina. Við munum setja alla einbeitingu á það,“
sagði Guardiola.

Leikmenn hafa skilað sér aftur til Englands eftir að hafa spilað tvo landsleiki síðustu vikuna, en Guardiola á mjög erfitt með að skilja tilgang gluggans. Aðeins einn leikmaður Man City spilaði það sem má kalla alvöru keppnisleik en það var Gianluigi Donnarumma sem lék með Ítölum í umspili um sæti á heimsmeistaramótið.

„Það er enn erfitt fyrir að skilja hvernig þetta er mögulegt. Þú spilar í níu mánuði og ert að spila um alla titla á þriggja daga fresti og kallar síðan leikmenn úr öllum heimsálfum í vináttulandsleiki. Það er glórulaust.“

„Á sama tíma er þetta hlé fyrir þá leikmenn og þjálfara sem fara ekki með landsliðunum sem er auðvitað mikilvægt fyrir lokasprettinn,“
sagði Spánverjinn.

Guardiola var spurður hvort hann væri andlega tilbúinn í síðasta mánuð tímabilsins og var ekkert hik í svari hans.

„Alltaf. Ekki bara núna. Alltaf!“ sagði Guardiola enn fremur.
Slapp
banner