Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   sun 23. maí 2021 05:55
Victor Pálsson
England í dag - Svakaleg lokaumferð framundan
Fer Chelsea í Meistaradeildina?
Fer Chelsea í Meistaradeildina?
Mynd: EPA
Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram í dag en heilir tíu leikir eru spilaðir klukkan 15:00 og því nóg um að vera.

Manchester City er búið að tryggja sér meistaratitilinn fyrir umferðina og er ljóst að West Brom, Fulham og Sheffield United falla niður í næst efstu deild.

Það er hins vegar hörð barátta um Evrópusæti og þá bæði þegar kemur að Evrópudeild og Meistaradeild.

Liverpool, Leicester og Chelsea eiga öll möguleika á Meistaradeildarsæti en fyrir leikina eru Chelsea og Liverpool í þriðja og fjórða sætinu. Leicester er í því fimmta og þarf að treysta á að hin tvö liðin misstígi sig.



Leicester spilar við Tottenham á heimavelli á meðan Liverpool tekur á móti Crystal Palace og Chelsea heimsækir Aston Villa.

Tottenham þarf sjálft verulega á sigri að halda í baráttu um Evrópudeildarsæti en Everton og Arsenal eiga möguleika á sjöunda sætinu ef illa fer á móti Leicester.

Arsenal spilar við Brighton á heimavelli og mætir Everton liði Manchester City í ansi erfiðu verkefni á Etihad vellinum.

ENGLAND: Premier League
15:00 Wolves - Man Utd
15:00 Arsenal - Brighton
15:00 Aston Villa - Chelsea
15:00 Fulham - Newcastle
15:00 Leeds - West Brom
15:00 Leicester - Tottenham
15:00 Man City - Everton
15:00 Sheffield Utd - Burnley
15:00 West Ham - Southampton
15:00 Liverpool - Crystal Palace
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 25 5 5 85 28 +57 80
2 Man City 34 24 7 3 82 32 +50 79
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 33 18 6 9 67 52 +15 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 33 13 9 11 63 59 +4 48
10 Bournemouth 35 13 9 13 52 60 -8 48
11 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
12 Brighton 34 11 11 12 52 57 -5 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 35 12 8 15 37 48 -11 36
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 35 7 9 19 42 62 -20 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner