Talið er að 18 leikmenn og starfsmenn Leyton Orient hafi verið smitaðir af kórónuveirunni þegar liðið mætti Mansfield í ensku D-deildinni um helgina.
Í gær var leik Leyton og Tottenham aflýst í enska deildabikarnum vegna smitanna.
Í gær var leik Leyton og Tottenham aflýst í enska deildabikarnum vegna smitanna.
Allir leikmenn Mansfield fóru í kórónuveirupróf eftir leikinn gegn Leyton um helgina.
Þrátt fyrir öll smitin hjá Leyton þá smitaðist enginn leikmaður Mansfield í leiknum en allir leikmenn liðsins fengu neikvæða niðurstöðu úr kórónuveiruprófinu.
Athugasemdir