Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 26. desember 2020 16:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Carragher með rosalega tæklingu í skemmtiþætti
Jamie Carragher.
Jamie Carragher.
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool, fór á kostum í Soccer AM sjónvarpsþættinum í dag.

Carragher og Gary Neville, sem starfa í dag sem sérfræðingar á Sky Sports mættu saman í þáttinn og áttust við í skotkeppni.

Þeir eru báðir miklir keppnismenn en það var fyrrum Liverpool maðurinn sem vann keppnina með yfirburðum gegn fyrrum Manchester United bakverðinum.

Jimmy Bullard, sem lék sem miðjumaður á sínum ferli, ákvað að taka þátt líka en það var stutt gaman hjá honum því Carragher henti í rosalega tæklingu á Bullard.

Bullard stóð upp og það virtist vera allt í lagi með hann en myndband af þessu má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner