Ólíklegt að Liverpool selji Robertson - City með augu á Trent Alexander-Arnold - Bobb frá City til Fulham
banner
   þri 27. janúar 2026 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Juventus reynir aftur við Kolo Muani
Mynd: Tottenham
Juventus vill fá franska sóknarmanninn Randal Kolo Muani aftur til félagsins á láni frá PSG.

Kolo Muani er á láni hjá Tottenham en Sky Sports að enska félagið er ekki tilbúið að leyfa neinum að fara fyrr en örlög þeirra í Meistaradeildinni liggja fyrir.

Liðið mætir Frankfurt á miðvikudaginn og sigur tryggir liðinu sæti í 16-liða úrslitum. Liðið hefur þegar tryggt sér að minnsta kosti sæti í umspilinu.

Kolo Muani var á láni hjá Juventus seinni hluta síðasta tímabils og var búist við því að hann yrði áfram en félagið náði ekki samkomulagi við PSG.

Athugasemdir
banner