Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 27. maí 2021 22:30
Aksentije Milisic
4. deild: Álftanes skoraði níu - Vængir Júpiters með sigur
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Fjórir leikir voru á dagskrá í 4. deildinni í kvöld en spilað var í C og D riðli.

Í C riðli slátraði Álftanes liði KM. Leiknum lauk með 9-0 sigri Álftanes þar sem Jón Helgi Pálmason gerði þrennu fyrir heimamenn.

Þá vann Björninn góðan 4-2 sigur á Ými í sama riðli.

Í D riðli áttust við Vængir Júpiters og KB. Vængir, sem féllu úr 3. deild á síðasta tímabili, unnu 4-0 sigur í kvöld. Vængir hafa unnið tvo leiki og tapað einum á meðan KB er á botninum án stiga.

Álftanes 9-0 KM
Markaskorarar: Jón Helgi Pálmason (3), Andri Janusson (2), Hinrik Þráinn Örnólfsson, Hlynur Bjarnason, Finn Axel Hansen, Atli Dagur Ásmundsson.

Björninn 4-2 Ýmir

KÁ-Álafoss
Úrslit og markaskorarar sendist á [email protected]

Vængir Júpiters 4-0 KB

Athugasemdir
banner
banner
banner