Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
banner
   sun 27. júní 2021 15:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einar Orri spáir í tíundu umferð Pepsi Max
Lék með Keflavík frá 2005 til 2018
Lék með Keflavík frá 2005 til 2018
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árni setur þrennu
Árni setur þrennu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einar Orri Einarsson, leikmaður Njarðvíkur, er spámaður Fótbolta.net fyrir tíundu umferð Pepsi Max-deildarinnar.

Albert Hafsteinsson, leikmaður Fram, var með fjóra rétta þegar hann spáði fyrir um úrslit leikjanna í níundu umferð.

Þrír leikir í deildinni fara fram í dag og þrír leikir á morgun. Svona spáir Einar Orri leikjunum.

FH 1 - 2 KA
Við Njarðvíkingar mættum FH í vikunni og þeir heilluðu ekki. Mjög góðir á pappír en það er eitthvað sem er ekki að virka þarna. Sterkur Útisigur og norðinu dreymir.

HK 1 - 3 Breiðablik
Keflavík búnir að jarða bæði þessi lið að undanförnu, en uppá fantasy set ég 1-3, Ljúbbi með eitt Árni V með 3. Takk.

Valur 3 - 0 Fylkir
Heimir hættir í iðnaðinum og skellir sér í samba. Þægilegur dagur á hlíðarenda.

KR 1 - 2 Stjarnan
Sá óvænti. Þorvaldur biður sína menn að dæla honum í mixerinn og vinna bolta 2. Skilar 2 mörkum og þeir harka sigurinn.

ÍA 0 - 2 Keflavik
Öruggur útisigur Keflavík stimplar sig úr fallbaráttunni í bili amk með því að vinna öll liðin í neðrihlutanum. Captain MÞ með eitt Gibbsarinn með hitt. Lykt af red card hjá ÍA.

Leiknir 1 - 3 Víkingur
Solid sigur hjá Vikes. Arnar Gunnlaugs í sumar skapi og gefur Adami Páls 4 mín í staðinn fyrir þessar vanalegu 2. Hann þakkar traustið og fær yellow.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner