Argentínumaðurinn Lionel Messi skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö í 4-1 sigri Inter Miami á New England Revolution í MLS-deildinni í nótt.
Messi hefur verið sjóðandi heitur á tímabilinu og virðist hann ekkert á því að fara kólna.
Miami lenti marki undir í leiknum en Messi jafnaði eftir laglega stungusendingu Robert Taylor.
Sergio Busquets átti þá konfektsendingu inn á Messi í öðru markinu og auðvitað skoraði Argentínumaðurinn.
Messi kom að síðustu tveimur mörkunum. Hann átti skot sem markvörður New England varði út á Benjamin Cremaschi sem skoraði og þá lagði Messi upp fjórða markið fyrir besta vin sinn, Luis Suarez, sem skoraði með frábæru skoti.
Á þessu tímabili hefur Messi skoraði níu mörk í MLS-deildinni og lagt upp fimm en Inter Miami er á toppnum í Austur-deildinni með 21 stig.
Dagur Dan Þórhallsson lék þá allan leikinn í 2-1 tapi Orlando City gegn Toronto. Orlando er í 13. sæti Austur-deildarinnar með 9 stig.
Inevitable.
— Major League Soccer (@MLS) April 28, 2024
Messi grabs his 8th goal of the season! ???? pic.twitter.com/iE0DNiKpGZ
Busquets --> Messi
— Major League Soccer (@MLS) April 28, 2024
Just too good. pic.twitter.com/Q4yl0Qi1OO
It's Cremaschi's first of the year and @InterMiamiCF's third on the night.
— Major League Soccer (@MLS) April 28, 2024
Miami up 3-1 in front of 65k. pic.twitter.com/7jI3At0Ipm
LUIS. SUAREZ. WOW. pic.twitter.com/coe7h5b5ll
— Major League Soccer (@MLS) April 28, 2024
Athugasemdir