Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 28. apríl 2020 12:16
Magnús Már Einarsson
Aron á von á sínu þriðja barni
Mynd: Getty Images
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, á von á sínu þriðja barni ásamt eiginkonu sinni Kristbjörgu Jónasdóttur.

Aron greindi frá tíðindunum á Instagram í dag en barnið á að fæðast í október.

Fyrir eiga Aron og Kristbjörg eiga tvo syni, Óliver Breka og Tristan Þór.

Óliver fæddist í mars árið 2015 en Aron missti af fæðingu hans þar sem hann var staddur í Kasakstan í leik með íslenska landsliðinu í undankeppni EM.

Aron Einar og fjölskylda hans er í Katar þessa dagana en lið hans Al Arabi er líkt og flest fótboltalið í pásu vegna kórónaveirunnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner