Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
banner
   fim 16. mars 2017 13:13
Elvar Geir Magnússon
Alfreð mögulega í hóp hjá Augsburg á laugardag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Augsburger Allgemeine greinir frá því að sóknarmaðurinn Alfreð Finnbogason gæti verið í hóp hjá Augsburg sem mætir Freiburg í mikilvægum leik í þýsku Bundesligunni á laugardag.

Alfreð hefur ekki spilað vegna nárameiðsla síðan 30. september þegar hann mætti Leipzig.

Hann hefur æft með Augsburg í vikunni en liðið er í 13. sæti þýsku deildarinnar, aðeins tveimur stigum frá umspils-fallsætinu.

Á morgun verður opinberaður landsliðshópur Íslands fyrir leik gegn Kosóvó í undankeppni HM. Óvíst er hvort Alfreð verður í hópnum vegna meiðsla sinna en hann hefur skorað í öllum þremur leikjunum sem hann hefur leikið í undankeppninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner