Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25149 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR01.02.2024, 21:47

Orel Mangala til Lyon (Staðfest)

<p>Orel Mangala er genginn til liðs við Lyon frá Nottingham Forest á láni. Það er ákvæði í samningnum um að Lyon geti keypt hann í sumar.</p>

FRÉTTIR01.02.2024, 18:37

Adam Wharton í Crystal Palace (Staðfest)

Miðjumaðurinn Adam Wharton er genginn í raðir Crystal Palace frá Blackburn fyrir 22 milljónir punda. Palace var að staðfesta skiptin núna rétt í þessu.

FRÉTTIR01.02.2024, 18:17

Ekitike til Frankfurt á láni (Staðfest)

<p>Franski framherjinn Hugo Ekitike er genginn til liðs við Frankfurt frá PSG á láni út tímabilið. Þýska félagið getur keypt hann fyrir 30 milljónir evra í sumar.</p>

FRÉTTIR01.02.2024, 17:54

Rúnar Alex í FC Kaupmannahöfn (Staðfest)

Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson hefur skrifað undir samning við FC Kaupmannahöfn sem gildir til ársins 2027. Hann yfirgaf Arsenal fyrr í dag og kemur til FCK á frjálsri sölu.

FRÉTTIR01.02.2024, 17:30

Yerry Mina til Cagliari (Staðfest)

Kólumbíski miðvörðurinn Yerry Mina hefur fengið sig lausan frá Fiorentina og er genginn í raðir Cagliari á samningi út þetta tímabili. Hann skrifar undir samning sem virkar þannig að félagið getur framlengt samninginn í ár til viðbótar ef vel gengur.

FRÉTTIR01.02.2024, 17:21

Aston Villa kaupir Sousa frá Arsenal - Lánaður til Plymouth (Staðfest)

Aston Villa hefur gengið frá kaupum á Lino Sousa sem er nítján ára vinstri bakvörður. Sousa kemur frá Arsenal. Hann er fæddur í Portúgal en hefur leikið með yngri landsliðum Englands. Hann getur ennþá kosið að spila fyrir Portúgal ef sá möguleiki kemur upp í framtíðinni. Hann hóf ferilinn á Englandi hjá WBA en kom til Arsenal árið 2022. Hann var í leikmannahópnum þegar Arsenal mætti Brentford á síðasta tímabili.

FRÉTTIR01.02.2024, 17:20

Isak Hansen-Aaröen frá Man Utd til Werder Bremen (Staðfest)

Werder Bremen hefur staðfest það að norski miðjumaðurinn Isak Hansen-Aaröen sé genginn í raðir félagsins frá Manchester United. Ekki er um lánssamning að ræða, heldur kaup. Ekki kemur fram hvað kaupverðið er.

FRÉTTIR01.02.2024, 16:43

Zaragoza mættur til Bayern (Staðfest) - Átti að koma í sumar

Bayern Munchen tilkynnti í dag að spænski kantmaðurinn Bryan Zaragoza væri mættur til félagsins. Félagið kaupir hann frá Granada á Spáni en upprunalega átti hann að koma til Bayern næsta sumar. Félagaskiptin eru sett þannig upp að hann kemur fyrst á láni en svo kaupir Bayern hann í sumar.

FRÉTTIR01.02.2024, 15:43

Newcastle kaupir ungstirni frá Man City (Staðfest)

Newcastle hefur gengið frá kaupum á hinum 18 ára gamla Alfie Harrison. Harrison kemur til félagsins frá Manchester City og er kaupverðið óuppgefið. Slúðurmiðlar hafa fjallað um að kaupverðið geti verið um 3,5 milljónir punda. Harrison er miðjumaður en hefur þrátt fyrir það verið líkt við Erling Haaland. Hann þykir líkjast honum í útliti og er sömuleiðis öflugur fyrir framan markið. Hann skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2026. Hann heillaði með unglingaliðum City en hefur ekki spilað fyrir aðalliðið.

FRÉTTIR01.02.2024, 15:19

Swansea fær Sagoe lánaðan frá Arsenal (Staðfest)

Arsenal hefur lánað Charles Sagoe Jr til Swansea í Championship-deildinni. Fyrir hjá Swansea er annar lánsmaður frá Arsenal, Charlie Patino. Sagoe er nítján ára framherji og lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Arsenal í deildabikarleik gegn Brentford í september á síðasta ári.

FRÉTTIR01.02.2024, 15:06

Afturelding fær miðvörð frá Brann (Staðfest)

Fótbolti.net greindi frá því fyrir helgi að Aron Jónsson væri að ganga í raðir Aftureldingar frá norska félaginu Brann. Nú hafa félagaskiptin verið staðfest. Aron er nítján ára miðvörður og á að baki tvo leiki fyrir U19 landslið Íslands. Hann hefur einnig leikið fyrir unglingalandslið Noregs.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.