„Ég er virkilega sáttur með þetta í kvöld á móti svona sterku liði eins og Val," sagði Þórir Guðjónsson eftir 2-1 sigur Fjölnis á Val í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 2 Fjölnir
„Þetta var fyrst og fremst varnarleikurinn og við náðum að nýta okkar færi. Það skapaði þennan sigur."
Þórir náði að skora tvö mörk gegn sínum gömlu félögum. „Það var virkilega ánægjulegt að ná að skora tvö mörk á móti Val," sagði Þórir.
Hér að ofan má sjá viðtalið.
Athugasemdir