Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 02. janúar 2021 16:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lanzini: Tek fulla ábyrgð á mínum slæmu mistökum
Mynd: Getty Images
Manuel Lanzini var gestur hjá Giovani Lo Celso um hátíðarnar. Þar voru einnig þeir Sergio Reguilon og Erik Lamela ásamt vinum og fjölskyldum. Lanzini er leikmaður West Ham en hinir þrír eru leikmenn Tottenham. Alls voru ellefu fullorðnir á mynd sem tekin var á jóladag.

Lanzini hefur beðist afsökunar á hegðun sinni og segist hafa gert slæm mistök.

„Ég vil biðjast afsökunar á þeim slæmu mistökum sem ég gerði um jólin og ég tek fulla ábyrgð á mínum gjörðum," skrifaði Lanzini á Twitter í dag.

„Ég veit að fólk hefur fórnað því að hitta sína nánustu og verið heima. Ég hefði átt að setja betra fordæmi."

West Ham gaf út tilkynningu í kjölfar fréttar Sportsmail um málið. „Félagið hefur sett strangar reglur í kringum takmarkanirnar sem eru í gildi. Við erum mjög vonsvikin með gjörðir Manuel Lanzini. Málið hefur verið tæklað innanbúðar og Manuel minntur á að hann eigi að vera fyrirmynd."
Athugasemdir
banner
banner
banner