Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   sun 02. febrúar 2020 22:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fótbolta.net mótið: Sjálfsmark réði úrslitum
Sigurvin Ólafsson, þjálfari KV, hér í leik með KFS.
Sigurvin Ólafsson, þjálfari KV, hér í leik með KFS.
Mynd: Eyjafréttir
KV 1 - 0 KFS
1-0 Sjálfsmark

KV fór með sigur af hólmi gegn KFS er liðin mættust í C-deild Fótbolta.net mótsins.

Það var sjálfsmark frá leikmanni KFS sem réði úrslitum í leiknum. Lokatölur 1-0.

KV er með fjögur stig eftir tvo leiki í riðli 1 í C-deild. KFS hefur tapað báðum leikjum sínum til þessa. KFS tapaði 4-2 gegn Hvíta riddaranum í fyrsta leik sínum.

Þess má geta að bæði þessi lið leika undir stjórn fyrrum A-landsliðsmanna. Sigurvin Ólafsson stýrir KV og Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfar KFS.
Athugasemdir
banner
banner
banner