Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 02. nóvember 2020 11:22
Magnús Már Einarsson
Matip og Keita byrjaðir að æfa - Með Liverpool á morgun?
Naby Keita
Naby Keita
Mynd: Getty Images
Naby Keita og Joel Matip eru báðir byrjaðir að æfa á nýjan leik með Liverpool og þeir gætu komið við sögu gegn Atalanta í Meistaradeildinni annað kvöld.

Keita og Matip hafa misst af síðustu leikjum vegna meiðsla. Virgil van Dijk er einnig meiddur og því hafa Fabinho, Rhys Williams og Nathaniel Phillips fyllt í skarðið í vörninni í síðustu leikjum.

Matip gæti snúið aftur í vörnina annað kvöld en Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, á eftir að taka ákvörðun þess efnis.

„Naby og Joel æfðu á fullu í gær en við höfum ekki tekið neina ákvörðun ennþá. Við þurfum að bíða eftir að læknaliðið gefur grænt, gult eða rautt ljós. Við erum komnir með fleiri miðverði," sagði Klopp á fréttamannafundi í dag.

Thiago Alcantara og Fabinho eru báðir áfram á meiðslalistanum hjá Liverpool ásamt Van Dijk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner