Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 04. júní 2022 15:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Englands: Bowen og Justin byrja sinn fyrsta leik
Mynd: EPA

England heimsækir Ungverjaland í fyrsta leik liðanna í þriðja riðli A deildar í Þjóðadeildinni í ár.


Leikurinn hefst kl 16 en byrjunarlið enska liðsins hefur verið opinberað.

Það lítur út fyrir að Gareth Southgate stilli upp í kerfið 3-4-3. James Justin leikmaður Leicester og Jarrod Bowen leikmaður West Ham spila sinn fyrsta A-landsleik í dag.

Justin er í vinstri vængbakverði, Trent Alexander-Arnold á þeim hægri. Bowen er með Harry Kane og Mason Mount frammi.

Byrjunarlið Englands: Pickford, Alexander-Arnold, Walker, Maguire, Coady, Justin, Rice, Bellingham, Mount, Bowen, Kane.

Bekkurinn: Pope, Ramsdale, Trippier, Stones, James, Grealish, Ward-Prowse, Gallagher, Phillips, Sterling, Saka, Abraham


Athugasemdir
banner
banner