Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fös 04. september 2020 20:24
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Þægilegur sigur KFS á Flúðum
Golfklúbbur Grindavíkur hafði betur gegn Vatnaliljum.
Golfklúbbur Grindavíkur hafði betur gegn Vatnaliljum.
Mynd: GG
Tveimur fyrstu leikjum kvöldsins er lokið í 4. deild þar sem KFS og GG unnu sína leiki í A-riðli.

KFS er með fjögurra stiga forystu á toppi riðilsins eftir þægilegan sigur á Flúðum.

Eyjamenn skoruðu fjögur gegn Uppsveitum, rétt eins og Grindvíkingar gegn Vatnaliljum.

Vatnaliljur svöruðu þó fyrir sig með tveimur mörkum og urðu lokatölur 4-2.

GG er í fimmta sæti, með 19 stig eftir 12 umferðir. Vatnaliljur eru í sjötta sæti með 11 stig.

Uppsveitir 0 - 4 KFS
0-1 Daníel Már Sigmarsson ('2)
0-2 Arnar Breki Gunnarsson ('7)
0-3 Elmar Erlingsson ('31)
0-4 Daníel Már Sigmarsson ('72)

GG 4 - 2 Vatnaliljur
Úrslit af úrslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner