Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 05. september 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho: Betra að tapa einum leik 4-0 en að tapa fjórum sinnum 1-0
Jose Mourinho
Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, þjálfari Roma, var ekkert að kvarta og kveina yfir 4-0 tapi liðsins fyrir Udinese í Seríu A í gær.

Roma lenti undir eftir einstaklingsmistök frá Rick Karsdorp og eftir það virkaði þetta nokkuð auðvelt fyrir Udinese.

Annað markið kom einnig eftir einstaklingsmistök og eftir það var Udinese sannfærandi og bætti við tveimur til viðbótar.

Mourinho var ekkert að kvarta yfir úrslitunum og reyndi að taka jákvæðan hlut út úr þessu.

„Ég kýs frekar að tapa 4-0 einu sinni en að tapa 1-0 fjórum sinnum. Andstæðingurinn veit hvernig á að spila þessa leiki þar sem þú getur ekki fengið fyrsta markið á þig. Ef þú tapar 4-0 þá getur þú ekki talað um dómarann. Það er regla sem ég hef sett mér. Við erum með 10 stig og erum þarna ofarlega með mörgum liðum," sagði Mourinho.
Athugasemdir
banner
banner
banner