Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 07. október 2021 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Turudija kveður Selfoss - Spilað átta tímabil á Íslandi
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kenan Turudija er á förum frá Selfossi eftir fjögur tímabil hjá félaginu.

Turudija greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum í dag. Hann er 31 árs miðjumaður sem lék með Víkingi Ólafsvík og Sindra áður en hann gekk í raðir Selfoss. Tímabilið í ár var hans áttunda á Íslandi.

Tímabilið 2019 skoraði Turudija tólf mörk í 21 leik í 2. deildinni. Eftir það tímabil var hann valinn besti leikmaður deildarinnar.

Þegar Selfoss fór upp úr 2. deildinni í fyrra skoraði hann fjögur mörk í átján leikjum og var valinn í lið tímabilsins.

Í sumar skoraði hann fjögur mörk í sautján leikjum í Lengjudeildinni, Selfoss endaði í 8. sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner