Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   fim 09. janúar 2020 12:23
Elvar Geir Magnússon
Young hafnar tilboði Man Utd - Vill fara til Inter
Young vill fara til Inter.
Young vill fara til Inter.
Mynd: Getty Images
Ashley Young hefur hafnað tilboði frá Manchester United um framlengingu á samningi. Sky Sport Italia greinir frá.

Young, sem er að spila sem bakvörður hjá United, vill fara til Inter.

Antonio Conte, stjóri Inter, er hrifinn af Young og reyndi að kaupa hann til Chelsea þegar hann hélt um stjórnartaumana þar. Nú vill hann fá leikmanninn til Inter.

Young er 34 ára og er fyrirliði United en samningur hans við félagið rennur út í sumar. Ole Gunnar Solskjær vill halda honum en leikmaðurinn vill fara.

Inter er væntanlega að bíða eftir því að geta hafið viðræður við United um að fá Young lausan núna í janúarglugganum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner