Í næstu viku lýkur 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Hér er allt sem þu þarft að vita um dráttinn í 8-liða úrslitin.
Hvenær er drátturinn?
Dregið verður í 8-liða úrslitin föstudaginn 19. mars og byrjar klukkan 11:00. Drátturinn verður í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss.
Hvenær er drátturinn?
Dregið verður í 8-liða úrslitin föstudaginn 19. mars og byrjar klukkan 11:00. Drátturinn verður í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss.
Með hvaða hætti verður drátturinn?
Þetta er algjörlega opinn dráttur og því geta lið frá sama landi dregist saman. Sem dæmi þá er mögulegt að Liverpool muni mæta Manchester City.
Liðin í pottinum:
Liverpool
Porto
Paris Saint-Germain
Borussia Dortmund
Borussia Mönchengladbach/Manchester City (0-2)
Atalanta/Real Madrid (0-1)
Lazio/Bayern München (1-4)
Atletico Madrid/Chelsea (0-1)
Hvenær verður leikið í 8-liða úrslitum?
8-liða úrslitin eru tveggja leikja einvígi. Fyrri leikirnir verða 6. og 7. apríl og seinni leikirnir viku síðar; 13. og 14. apríl.
Athugasemdir