Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 11. september 2021 15:13
Victor Pálsson
Einkunnir Crystal Palace og Tottenham - Zaha bestur
Mynd: Getty Images
Wilfried Zaha var valinn maður leiksins í dag er Crystal Palace mætti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.

Tottenham fékk skell á Selhurst Park og tapaði leiknum 3-0. Japhet Tanganga fékk rautt spjald á 58. mínútu sem varð til þess að Palace skoraði þrjú mörk.

Zaha var allt í öllu fyrir Palace en hann skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu og lagði upp það annað á Odsonne Edouard.

Edouard kom inná sem varamaður og skoraði tvö mörk og fær einnig níu í einkunn fyrir sðina frammistöðu.

Crystal Palace: Guaita (7), Ward (7), Guehi (7), Anderson (8), Mitchell (7), Kouyate (7), McArthur (7), Gallagher (8), Ayew (7), Zaha (9), Benteke (6)

Varamenn: Olise (6), Milivojevic (6), Edouard (9)

Tottenham: Lloris (6), Reguilon (6), Dier (6), Royal (5), Tanganga (4), Hojbjerg (6), Winks (6), Skipp (6), Alli (6), Moura (7), Kane (5)

Varamenn: Rodon (6), Davies (5)
Athugasemdir
banner