Aron Einar Gunnarsson var í byrjunarliði Al-Gharafa þegar liðið tapaði gegn Qatar SC í 18. umferð í deildarkeppninni í Katar í kvöld.
Aron kom hingað til lands fyrir helgi ásamt fjölskyldu sinni vegna þeirra átaka sem geysa í Mið-Austurlöndum. Hann sneri hins vegar aftur til Katar til að spila leikinn í kvöld.
Aron kom hingað til lands fyrir helgi ásamt fjölskyldu sinni vegna þeirra átaka sem geysa í Mið-Austurlöndum. Hann sneri hins vegar aftur til Katar til að spila leikinn í kvöld.
Hann var í byrjunarliðinu en var tekinn af velli þegar rúmar tíu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Leiknum lauk með 2-0 sigri Qatar SC.
Al-Gharafa er í 3. sæti með 34 stig. Liðið er með jafn mörg stig og Shamal sem er í 2. sæti og fjórum stigum á eftir toppliði Al-Sadd en bæði lið eiga leik til góða.
Athugasemdir



