Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   fös 13. mars 2026 21:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Tvö sjálfsmörk á tveimur mínútum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Torino 4 - 1 Parma
1-0 Giovanni Simeone ('3 )
1-1 Mateo Pellegrino ('20 )
2-1 Enrico Del Prato ('55 , sjálfsmark)
3-1 Mandela Keita ('57 , sjálfsmark)
4-1 Duvan Zapata ('90 )

Torino og Parma áttust við í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild ítalska boltans og skoraði Giovanni Simeone strax á þriðju mínútu með skoti sem Zion Suzuki átti að verja. Suzuki var með hendur á boltanum en missti hann á milli fótanna og í netið.

Mateo Pellegrino jafnaði með skalla eftir frábæra fyrirgjöf Gabriel Strefezza og var staðan jöfn í leikhlé. Parma hafði verið sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en það var ekki sjón að sjá liðið eftir leikhléð og skoruðu heimamenn í Tórínó tvö mörk með stuttu millibili snemma í síðari hálfleik.

Bæði mörkin eru skráð sem sjálfsmörk þar sem Enrico Del Prato tæklaði frábæra fyrirgjöf frá Che Adams fyrst í netið áður en marktilraun Simeone fór af markslánni, í Mandela Keita og þaðan í netið.

Parma átti engin svör og gulltryggði Duván Zapata sigur heimamanna með flottu skoti rétt utan teigs í uppbótartímanum, svo lokatölur urðu 4-1.

Torino og Parma sigla lygnan sjó í neðri hluta Serie A. Torino er níu stigum frá fallsvæðinu, með 33 stig eftir 29 umferðir - einu stigi minna heldur en Parma.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner