Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 18:47
Brynjar Ingi Erluson
Alisson verður áfram hjá Liverpool
Mynd: EPA
Englandsmeistarar Liverpool hafa virkjað ákvæði í samningi brasilíska markvarðarins Alisson um að framlengja samning hans út næsta tímabil en það er hinn áreiðanlegi Paul Joyce sem segir frá þessu á X.

Alisson var samningsbundinn Liverpool út þetta tímabil en félagið átti möguleika á að framlengja samninginn um eitt ár til viðbótar.

Félagið nýtti sér það ákvæði og er hann því samningsbundinn til 2027.

Brasilíumaðurinn er einn af lykilmönnum Liverpool og verið það síðan hann kom frá Roma árið 2018.

Á þessum átta árum hefur hann einu sinni verið valinn besti markvörður heims, tvisvar unnið gullhanskann í ensku úrvalsdeildinni og fagnað fjölmörgum titlum með Liverpool.

Þetta eru gleðifréttir fyrir Liverpool sem er þó með ágætis staðgengil á bekknum í Giorgi Mamardashvili sem mun líklegast taka við keflinu af Alisson eftir næsta tímabil.


Athugasemdir
banner