Sádi-arabíska liðið Al Nassr þurfti ekki á Cristiano Ronaldo að halda til þess að vinna Al Khaleej í úrvalsdeildinni þar í landi en það vann sannfærandi 5-0 sigur þar sem Joao Felix skoraði tvö.
Samkvæmt erlendum miðlum er Ronaldo frá vegna meiðsla og í meðhöndlun á Spáni en einhverjar samsæriskenningar eru á lofti um að hann hafi yfirgefið Sádi-Arabíu vegna loftárása Írana á Riyadh.
Ronaldo verður ekki leikfær fyrr en eftir landsleikjaverkefnið en Al Nassr þarf ekki á honum að halda, alla vega ekki í bili.
Liðið fór illa með Al Khaleej. Joao Felix, samlandi Ronaldo, skoraði tvö og þá gerði brasilíski vængmaðurinn Angelo eitt eftir stoðsendingu frá Felix.
Heimamennirnir Ayman Yahya og Abdullah Al Hamdan gerðu hin tvö mörkin.
Al Nassr er á toppnum í sádi-arabísku deildinni með 67 stig eftir 26 leiki. Felix er fimmti markahæsti leikmaður deildarinnar með 15 mörk auk ellefu stoðsendinga.
Athugasemdir


