Gylfi Þór Sigurðsson vonast til að Everton styrki leikmannahópinn meira á næstu vikum áður en keppni hefst í ensku úrvalsdeildinni.
Everton hefur fengið markvörðinn Jonas Lossl frá Huddersfield og á dögunum keypti félagið Andre Gomes sem var í láni frá Barcelona á síðasta tímabili.
„Þetta er frábært," sagði Gylfi aðspurður út í kaupin á Andre Gomes.

„Félagið vill halda gæðunum frá síðasta tímabili og reyna að bæta okkur líka svo það var mjög mikilvægt fyrir okkur að halda honum."
„Vonandi styrkjum við hópinn ennþá meira. Það er það sem leikmenn og starfsfólk vill svo vonandi fáum við nokkra leikmenn til viðbótar."
Athugasemdir