Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   mán 19. júlí 2021 10:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho með dróna og risaskjá á æfingasvæðinu
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Roma, er byrjaður að láta menn taka á því á æfingasvæðinu.

Mourinho er á leið inn í sitt fyrsta tímabil með Roma eftir að hafa verið rekinn frá Tottenham í apríl síðastliðnum.

Mourinho er byrjaður að vinna með nýjar aðferðir á æfingasvæðinu. Hann notar dróna til að fylgjast með leikmönnum og er með svo risaskjá þar sem hann getur farið yfir málin með leikmönnum sínum um leið.

Með því að nota dróna fær Mourinho góða yfirsýn af því hvernig liðið lítur út á æfingum og er hann þá fljótur að sjá hvað má betur fara.

Það hefur verið talað um það að Mourinho sé á niðurleið en spurning er hvort þessar nýju aðferðir muni hjálpa honum á komandi tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner