Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   sun 21. nóvember 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Nasri fékk skilaboð frá Aguero: Hann staðfesti þetta við mig
Samir Nasri og Sergio Aguero eru góðir félagar
Samir Nasri og Sergio Aguero eru góðir félagar
Mynd: EPA
Samir Nasri, fyrrum samherji Sergio Aguero hjá Manchester City, segir að framherjinn hafi sent honum skilaboð og tilkynnt honum að hann væri hættur í fótbolta vegna hjartavandamála.

Spænski blaðamaðurinn Gerard Romero greindi frá því í gær að Aguero ætlaði sér að leggja skóna á hilluna eftir að hann fékk hjartatruflanir í leik með Barcelona á dögunum.

Aguero má ekki spila með Börsungum næstu þrjá mánuði en samkvæmt Romero þá ætlar argentínski framherjinn að kalla þetta gott og leggja skóna á hilluna.

Nasri og Aguero voru góðir félagar hjá Manchester City en hann staðfesti í viðtali við L'Equipe að Aguero væri að hætta.

„Hann sendi mér skilaboð og því miður þá er þetta staðfest. Mér þykir þetta rosalega leitt því fyrir utan það að vera leikmaður sem allir þekkja þá er hann líka frábær gaur," sagði Nasri.

Xavi sagði eftir 1-0 sigurinn á Espanyol í gær að fréttirnar væru ekki sannar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner