Man Utd vann nauman sigur á Everton í kvöld en Benjamin Sesko kom inn á sem varamaður og skoraði eina mark leiksins.
Bæði lið voru í vandræðum fram á við lengst af en Man Utd braut ísinn eftir skyndisókn þar sem Matheus Cunha átti langa sendingu fram völlinn á Bryan Mbeumo. Hann renndi boltanum á Sesko sem tryggði liðinu sigurinn.
Í kjölfarið fékk Everton nokkur góð tækifæri til að jafna metin en Senne Lammens átti góðan leik í marki Man Utd og var valinn maður leiksins að mati Sky Sports. Hann fékk átta í einkunn eins og Sesko.
James Garner og Idrissa Gana Gueye voru bestu leikmenn Everton en þeir fengu sjö í einkunn hjá Sky Sports.

Everton: Pickford (6); Garner (7), Tarkowski (6), Keane (6), Branthwaite (6); Gana (7), Iroegbunam (6), Dewsbury-Hall (6); Armstrong (5), Barry (5), Ndiaye (6)
Varamenn: Beto og George (Spiluðu ekki nóg)
Man Utd: Lammens (8); Dalot (6), Maguire (7), Yoro (6), Shaw (6); Casemiro (6), Mainoo (6); Amad (6), Fernandes (6), Cunha (6), Mbeumo (7)
Varamenn: Sesko (8), Heaven og Mazraoui (Spiluðu ekki nóg)
Athugasemdir