Brasilíski kantmaðurinn Vinícius Júnior var í byrjunarliði Real Madrid og lagði eitt mark upp í 3-0 sigri gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu í miðri viku.
Vinícius jafnaði þar með stoðsendingamet Cristiano Ronaldo og eru þeir tveir saman stoðsendingahæstu leikmenn í sögu Real Madrid í Meistaradeildinni, með 31 stoðsendingu á haus.
Vinícius lagði annað mark leiksins upp fyrir Federico Valverde, sem skoraði öll mörkin á Santiago Bernabéu, og fiskaði svo vítaspyrnu í síðari hálfleik.
Vinícius bauð Valverde að taka spyrnuna til að fullkomna fyrstu fernu ferilsins en Úrúgvæinn afþakkaði boðið. Vinícius hefur verið í vandræðum með markaskorun á tímabilinu og vildi Valverde hjálpa Brassanum að hrökkva í gang fyrir framan markið.
Gianluigi Donnarumma, markvörður Man City sem braut á Vinícius til að fá dæmda vítaspyrnu á sig, gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna.
„Vini spurði mig hvort ég vildi taka vítaspyrnuna," sagði Valverde eftir leikinn. „Vini er goðsögn hjá Real Madrid og frábær vinur. Ég og strákarnir vorum sammála og sögðum honum að taka spyrnuna sjálfur.
„Það geta allir klúðrað af vítapunktinum, þetta er partur af leiknum."
12.03.2026 07:30
Pep: Betra að tapa 3-0 heldur en 4-0
Athugasemdir


