Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 14. mars 2026 22:57
Brynjar Ingi Erluson
Arteta hrósaði táningnum í hástert - „Þetta mun lifa lengi í minnum fólks“
Max Dowman skrifaði sig í sögubækurnar í kvöld
Max Dowman skrifaði sig í sögubækurnar í kvöld
Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hrósaði hinum 16 ára gamla Max Dowman í hástert fyrir að hafa breytt leik liðsins og séð um að landa 2-0 sigri á Everton í kvöld.

Dowman sýndi gæði sín er hann kom inn á fyrir Martin Zubimendi, sem þótti fremur djörf skipting.

Englendingurinn var ískaldur og hreyfði tilefnið ekki við honum. Hann átti stóran þátt í fyrra marki Arsenal sem kom undir lok venjulegs leiktíma og skoraði síðan fyrsta deildarmark sitt nokkrum mínútum síðar.

„Þetta var ótrúlegt. Þessi tími, framlag, skuldbindingin og ástríðan sem við höfum lagt í þessa ótrúlegu íþrótt sem við köllum fótbolta og að geta fengið að upplifa þessi augnablik, orkuna úr stúkunni og þessa gleði. Það er hreint út sagt ótrúlegt,“ sagði Arteta.

„Það að horfa á þjálfarateymið og leikmennina og sjá gleðina í augum þeirra er svo ótrúlega sérstakt. Við urðum vitni að einu besta augnabliki sem við höfum séð á Emirates og ég er viss um að þetta muni lengi lifa í minnum fólks. 'Ég var á Emirates þegar 16 ára strákur fékk boltann við miðjuna og brunaði alla leið fram og skoraði',“ sagði hann ennfremur.

„Þetta sýnir bara hversu mikið við viljum þetta og þessa þrá um að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur. Maður finnur fyrir þessu á hverjum einasta degi og við munum gefa allt til þess að gera það að veruleika,“ sagði Spánverjinn.

Dowman er yngsti markaskorari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, en hann sló þar 21 árs gamalt met James Vaughan.

„Ég sé þetta hjá honum á hverjum degi. Þetta er leikmaður sem lætur tilefnið eða andstæðinginn trufla sig. Hann breytti leiknum og það er hreint ótrúlegt hvað hann hefur afrekað aðeins 16 ára gamall. Ekki bara út af þessu marki en bara hvernig hann ber sig í hverri einustu aðgerð og ákvarðanirnar sem hann tekur eru alveg ótrúlegar.“

„Þetta var stórkostlegt fyrir hann, liðið, fjölskyldu hans og bara fyrir alla sem tengjast fótbolta. Að treysta þessum krökkum þegar þeir hafa hæfileikana og hugrekkið til að spila leikinn er alger fegurð og hann kom sér svo sannarlega í sögubækurnar í dag,“
sagði Arteta.
Athugasemdir
banner
banner