The Athletic greinir frá því að Tottenham Hotspur sé í virkri leit að nýjum þjálfara til að stýra liðinu til bráðabirgða út tímabilið.
Igor Tudor var ráðinn í febrúar en liðið hefur tapað fyrstu fjórum leikjunum undir hans stjórn og fengið fjórtán mörk á sig í leiðinni.
Tottenham steinlá í fyrri leiknum gegn Atlético Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni og var Tudor meðal annars gagnrýndur fyrir meðhöndlun sína á markverðinum Antonín Kinský.
Ýmis nöfn hafa verið nefnd til sögunnar til að taka við af Tudor, en Tottenham á ennþá eftir að spila þrjá leiki fyrir næsta landsleikjahlé. Spurs á erfiða leiki gegn Liverpool og Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni og seinni leikinn gegn Atlético á heimavelli.
Tottenham er aðeins einu stigi fyrir ofan fallsvæði úrvalsdeildarinnar og er afar óvænt í hættu á að falla úr efstu deild í fyrsta sinn í næstum því 50 ár.
Tottenham er eitt af sex enskum félagsliðum sem hafa aldrei fallið úr úrvalsdeildinni frá því að hún var stofnuð árið 1992.
12.03.2026 12:30
Örlög Tudor í höndum þeirra sem sáu um að ráða hann
Athugasemdir



