Ítalíumeistarar Napoli ætla að festa kaup á Rasmus Höjlund eftir tímabilið. Giovanni Manna, yfirmaður fótboltamála hjá Napoli, staðfestir þetta.
Napoli borgaði 6 milljónir evra til að fá Höjlund á lánssamningi frá Manchester United og er Daninn búinn að skora 13 mörk og gefa 4 stoðsendingar í 35 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.
Lánssamningi Höjlund fylgir árangurstengd kaupskylda sem hljóðar upp á 44 milljónir til viðbótar. Napoli ber skylda að festa kaup á framherjanum ef liðið endar í meistaradeildarsæti í ítölsku deildinni og Höjlund spilar yfir helming leikja. Hann hefur þegar spilað meira en helming leikja og er liðið á góðri leið með að enda í einu af fjórum efstu sætunum
„Það eru engar efasemdir hjá okkur, Rasmus verður áfram hérna. Okkur ber skylda að kaupa hann ef við náum meistaradeildarsæti en okkur er sama um það. Rasmus er mikilvægur partur af okkar framtíðaráformum sama í hvaða sæti við endum," sagði Manna.
13.03.2026 19:00
Vonast til að fá 70 milljónir fyrir Höjlund og Rashford
Athugasemdir





