Íslendingalið Lille er komið í fimmta sæti frönsku deildarinnar eftir að hafa unnið 2-1 sigur á Rennes á útivelli í kvöld. Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson skoraði sjötta deildarmark sitt á tímabilinu.
Hákon skoraði annað mark Lille í leiknum eftir stórkostlegan undirbúning frá Matias Fernandez-Pardo sem keyrði upp allan völlinn í skyndisókn, kom boltanum inn á Hákon sem hafði verið samferða upp völlinn og skoraði hann örugglega.
Pardo gerði fyrra mark liðsins og var maður leiksins að mati FlashScore með 8,4 en Hákon var með 7,3.
Lille er í 5. sæti deildarinnar með 44 stig, þremur frá Lyon sem gerði óvænt markalaust jafntefli við tíu leikmenn Le Havre.
Toulouse vann Metz, 4-3, í miklum spennuleik. Staðan var 3-2 í hálfleik fyrir Toulouse þar sem Yann Gboho gerði tvö mörk.
Georgíumaðurinn Giorgi Abuashvili jafnaði metin seint í leiknum áður en miðjumaðurinn Mario Sauer skoraði sigurmark Toulouse á síðustu andartökum leiksins.
Svekkjandi fyrir Metz sem mátti ekki alveg við þessu en liðið er á botninum með 13 stig.
Strasbourg og Paris FC, tvö af ríkustu félögum Frakklands, gerðu markalaust jafntefli.
Strasbourg er auðvitað í eigu BlueCo, sem á einnig enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea á meðan Paris FC er í eigu franska viðskiptamannsins Bernard Arnault, sem er einn af ríkustu mönnum veraldar.
Strasbourg er í áttunda sæti með 37 stig og gerir sér vonir um að komast í Evrópukeppni á næsta tímabili en Paris er í 13. sæti með 28 stig.
Athugasemdir


